Færsluflokkur: Lífstíll

Enn í gírnum.

Gengur þokkalega að halda mig við hollustuna, hef farið út að ganga daglega og borða voða hollt.  Örlítil hliðarspor eins og gengur, en ekkert alvarlegt þó.

Fiskur og grænmeti í matinn áðan, ég hefði allt eins getað borðað loft, ég meina það.  Gaula í mér garnirnar.Whistling

Þýðir ekki að vola yfir því, er farin út að ganga!  Ciao!  


Gleymdi að segja..

...vigtun á laugardagsmorgnum.    Dagurinn í dag fínn enn sem komið er, framundan er göngutúr og lambaket með grænmeti.

Næsta utanlandsferð er 5-8 júní, markmiðið er að ná 10kg fyrir þann tíma.  Svo aftur 6-8kg fyrir ferðina þar á eftir, 8 vikum síðar.   Þá er þetta nú langt komið.


Jæja byrjuð aftur!

Fór á vigt og er komin í gang, er reyndar ekki í mínus 5,7 lengur eins og bannerinn segir, en ætla bara að hafa hann svona þar til ég get hreyft hann aftur  Halo

Hef farið í göngu núna daglega í nokkra daga, og passað mataræðið mjög.  Mikið grænmeti og lítið af öðru.

 

I'm back!!

 

woman_cartoon_running


Glataður bloggari.

Alveg mánuður síðan síðast og ég hef ekki lést um gramm Blush

Þyngist þó ekki, það er þó bót í máli.  Er að reyna að finna taktinn, vonandi fer þetta að koma.

 

ist2_2249723_cute_pink_hippo


Langaði í rauðvín.

Og lét það eftir mér.  Rauðvín og grænmeti er gott saman, ég meina það.  Er alveg að verða mjóLoL

Red wine 1


Áfram dugleg.

Dagurinn í dag góður.

mm: ristað brauð með camembert og sykurlausri sultu.

hm: reyktur lax, brauð með léttmajó og konfekttómatar.

md: létt ab mjólk með kanil og sætuefni.

km: 300g grænmeti og kjöt.

 Er ekki alveg 100% að fara eftir danska, en svona nánast.  Líður amk mun betur, nú fer sól að hækka á lofti og föt að verða léttari og ljósari, eins gott að vera klár fyrir sumarið Cool


Namm!

Sauð 300g pokagrænmeti, steikti lambaket og gluðaði grænmetinu útá pönnuna, hellti svo slurk af soya yfir det hele.  Mikið rosalega var þetta gott.

Hef verið frekar dugleg, var með gott kjúllasalat í hádeginu, þó ekki 300g grænmeti, en slatti samt.  Gengur vel að halda í við mig, það er nú það sem skiptir máli.  Hef ekkert stigið á vigt, en er jafnvel að spá í það á föstudagsmorgun. *svitn*

Finn alveg að ég hef tútnað út, en það þýðir ekki að grenja það - bara taka á því Wink

Fat-Women--4944

 


Danskur dagur í dag.

Svei mér þá.

300g grænmeti og fiskur í hádeginu, og 300g grænmeti og ket í kvöldmat. Millimál og morgunmatur líka eftir settum reglum.  Er meira að segja búin að útbúa nesti fyrir morgundaginn.

Þetta er að koma.  


Bolla bolla..

...man ekki eftir einum einasta bolludegi þar sem ég hef ekki verið í megrun.  Dísess.


Salat og aftur salat.

Borðaði salat í hádeginu og salat í kvöldmat, það samanstóð af kjúklingi og allskonar grænmeti.  Var svo að sporðrenna mangó núna rétt áðan.  Er alveg að verða mjó LoL

Keypti magóskera í Hagkaup, þvílíka snilldargræjan, ekkert mál að "verka" þetta núna Wink

Mangóskeri


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband